Alþjóðlegur dagur stafræns aðgengis 2026.

Í dag fimmtudaginn 21. maí er Alþjóðlegur dagur stafræns aðgengis (Global Accessibility Awareness Day – GAAD). Markmið dagsins er að vekja athygli á mikilvægi stafræns aðgengis og þátttöku fatlaðs fólks í stafrænu samfélagi.

Í tilefni dagsins standa samtök blindra og sjónskertra á Norðurlöndum saman að sameiginlegu átaki undir slagorðunum:

„Við getum unnið“ og „Stafrænt aðgengi á vinnustað er lykillinn að þátttöku og jafnrétti.“

Blindrafélagið tekur þátt í átakinu og kallar eftir auknu stafrænu aðgengi á íslenskum vinnumarkaði.

Þrátt fyrir framfarir eru margir blindir og sjónskertir enn útilokaðir frá atvinnulífi vegna þess að tölvukerfi, hugbúnaður og stafrænar lausnir uppfylla ekki kröfur um aðgengi og algilda hönnun. Óaðgengileg kerfi skapa óþarfa hindranir sem takmarka möguleika fólks til atvinnuþátttöku.

Með aðgengilegum stafrænum lausnum geta blindir og sjónskertir hins vegar tekið fullan þátt í störfum, samskiptum og daglegum verkefnum á vinnustaðnum með hjálpartækni á borð við skjálesara og talgervla.

Blindrafélagið leggur áherslu á að stafrænt aðgengi sé ekki eingöngu tæknilegt mál heldur jafnréttis- og mannréttindamál. Samfélagið verður sterkara þegar allir fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum og stafrænt aðgengi á vinnustað er lykill að þátttöku og jafnrétti.

Hægt er að horfa á myndband á þessum link til þess að fá betri innsýn í mikilvægi aðgengis og þátttöku á vinnumarkaði.