Dagskrá aðalfundar

Aðalfundur Blindrafélagsins verður haldinn laugardaginn 12. maí 2018 í samkomusal félagsins að Hamrahlíð 17. Fundurinn hefst kl. 13 síðdegis. Hægt verður að hlusta á útsendingu frá aðalfundinum í gegnum Vefvarp Blindrafélagsins. Þá er valið að fara inn í liðinn „Efni frá Blindrafélaginu“ og þar valinn liðurinn „Bein útsending frá úr sal Blindrafélagsins“

Fundurinn hefst kl. 13 síðdegis.

 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

1. Formaður félagsins setur fund.

2. Kynning viðstaddra.

3. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

4.  Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar.

5. Inntaka nýrra félaga.

6. Látinna aðalfélaga minnst.

7. Skýrslur lagðar fram:

a)   Formaður flytur skýrslu stjórnar.

b)   Umræður um skýrslur.

8. Ársreikningar félagsins fyrir árið 2017 lagðir fram:

a)Löggiltur endurskoðandi Blindrafélagsins kynnir efnahags og rekstrarreikninga félagsins.

b)Umræður um ársreikningana.

c) Ársreikningar bornir upp til samþykktar.

 9.  Kosning formanns og tveggja aðalmenna og varamanna í stjórn félagsins til tveggja ára.

10. Ákveðið árstillag félagsmanna fyrir næsta almanaksár og gjalddagi þess.

11  Kosning þriggja einstaklinga  í kjörnefnd og einn til vara.

12.Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og jafn margra varamanna til tveggja ára.

13. Aðalfundur ákveði laun stjórnarmanna.
14. Önnur mál.
Umræður og afgreiðsla þriggja ályktunartillagna frá stjórn Blindrafélagsins.

 15. Fundarslit.

Léttar veitingar verða í boði að loknum aðalfundi.

Stjórn Blindrafélagsins