Á ferð og flugi með Happdrættismiða

Vetrarhappdrætti Blindrafélagsins er komið af stað og þessa dagana er Ólafur Hafsteinn á ferð og flugi um Reykjavík og nágrenni að selja happdrættismiða til styrktar félaginu.

Ef þið eruð á ferli um borgina gætuð þið rekist á Ólaf með happdrættismiða við höndina. Með kaupum á miða styðjið þið mikilvægt starf Blindrafélagsins í þágu blindra og sjónskertra um allt land.

Fyrir þau sem ekki ná að hitta á Ólaf er einnig hægt að kaupa miða í Vetrarhappdrætti Blindrafélagsins í vefversluninni hér.

Blindrafélagið þakkar öllum sem taka þátt og styðja starf félagsins.