Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfsemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Með því að kaupa happdrættismiða tekur þú virkan þátt í að styðja blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri til sjálfstæðis og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.
Happdrættismiðar hafa verið sendir sem valkröfur í heimabanka stuðningsaðila Blindrafélagsins merktir "Blindrafélagið - Happdrætti". Númerið á happdrættismiðanum er númerið á kröfunni. Hægt er að kaupa happdrættismiða á netinu með þessum hlekk, en einnig er hægt að kaupa miða á skrifstofu félagsins í Hamrahlíð 17 og í síma 525 0000.
Glæsilegir vinningar eru í boði:
Volkswagen ID Polo 100% rafmagnaður, frá Heklu að verðmæti 5.490.000 kr.
10 gjafabréf frá Erninum, hvert að verðmæti 500.000 kr.
60 gjafabréf frá 66°Norður, hvert að verðmæti 100.000 kr.
25 ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti 300.000 kr.
30 Bónusgjafakort, hvert að verðmæti 100.000 kr.
15 Samsung Galaxy Tab S11 Wifi 128GB, hver að verðmæti 169.995 kr.
15 Samsung Galaxy S26 Ultra 256GB, hver að verðmæti 254.990 kr.
15 Samsung Galaxy Flip8 256GB, hver að verðmæti 229.990 kr.
50 gjafabréf frá Útilíf, hvert að verðmæti 200.000 kr.
Stuðningur þinn hjálpar til við að bæta lífsgæði þeirra sem nýta sér þjónustu félagsins og stuðlar jafnframt að samfélagi þar sem allir fá tækifæri til virkrar þátttöku. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að Blindrafélagið geti haldið úti öflugri og fjölbreyttri starfsemi.
Vinningaskrá verður birt á heimasíðu Blindrafélagsins www.blind.is.
Upplag 71.000 miðar.
Vinninga ber að vitja innan árs.
Gjafabréf Heimsferða gilda í tvö ár frá afhendingu.
Bónusgjafakort gilda í fjögur ár frá útgáfudegi.
Vinningsbíll getur verið frábrugðinn þeim bíl er birtur er á mynd happdrættismiðans.
Til upplýsinga:
Þegar happdrættismiði er keyptur í gegnum valkröfu í heimabanka birtist miðanúmerið ekki alltaf beint sem „miðanúmer“. Það getur verið skráð á mismunandi hátt eftir bönkum:
- Í sumum bönkum kemur miðnúmerið fram sem seðilnúmer.
- Í öðrum tilvikum er miðnúmerið síðustu tölustafirnir í kröfunúmerinu.
Dæmi:
- Kröfunúmer: xxx xxxx 9012 → miðnúmer gæti verið 9012
- Kröfunúmer: xxxx xxxx 1122 → miðnúmer gæti verið 1122
- Ef „seðilnúmer“ er sýnt, þá er það sjálft miðnúmerið.
- Best er að skoða þetta í heimbanka á vafra.
Ef einhver vafi er á hvað er rétt miðanúmer er alltaf hægt að:
- Hringja í afgreiðslu í síma 525 0000
- Eða senda kennitölu á afgreidsla@blind.is og fá miðnúmerið staðfest.
Við hjálpum þér með ánægju!