Stjórn Blindrafélagsins boðar til félagsfundar miðvikudaginn 18. mars, klukkan 16:00.
Fundurinn verður í sal Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta á fundinn geta skráð sig á fjarfund. Fundinum verður einnig streymt í vefvarpinu.
Dagskrá:
- Fundarsetning.
- Kynning fundargesta.
- Kjör starfsmanna fundarins.
- Afgreiðsla fundargerðar síðasta félagsfundar.
- Hvað höfum við lært af færnibúðum fyrir blind og sjónskert ungmenni. Dr. Ingi Þór Einarsson frá Háskólanum í Reykjavík og María Sól Jónsdóttir.
- Heilsutengt – líkamsstaða og öndun.
- Önnur mál.
Mikilvægt er að skrá sig á fundinn hjá skrifstofu Blindrafélagsins, á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000.
Fundargerð síðasta félagsfundar má finna neðst í fréttabréfinu.
Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins,
Sigþór U. Hallfreðsson, formaður.