Félagsfundur, 18. mars.

Stjórn Blindrafélagsins boðar til félagsfundar miðvikudaginn 18. mars, klukkan 16:00.

Fundurinn verður í sal Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta á fundinn geta skráð sig á fjarfund. Fundinum verður einnig streymt í vefvarpinu.

Dagskrá:

  1. Fundarsetning.
  2. Kynning fundargesta.
  3. Kjör starfsmanna fundarins.
  4. Afgreiðsla fundargerðar síðasta félagsfundar.
  5. Hvað höfum við lært af færnibúðum fyrir blind og sjónskert ungmenni.  Dr. Ingi Þór Einarsson frá Háskólanum í Reykjavík og María Sól Jónsdóttir.  
  6. Heilsutengt – líkamsstaða og öndun.
  7. Önnur mál.

Mikilvægt er að skrá sig á fundinn hjá skrifstofu Blindrafélagsins, á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000.

Fundargerð síðasta félagsfundar má finna neðst í fréttabréfinu.

Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins,
Sigþór U. Hallfreðsson, formaður.