Posar víða óaðgengilegir blindu og sjónskertu fólki

Ný könnun Evrópska blindrafélagsins (EBU) varpar ljósi á alvarlegar hindranir sem blindir og sjónskertir einstaklingar standa frammi fyrir við notkun posa víða um Evrópu. Í könnun sem byggir á svörum frá 18 aðildarsamtökum, kemur skýrt framm að hefðbundnum tökkum sé sífellt oftar skipt út fyrir snertiskjái sem gerir sjálfstæða notkun ómögulega fyrir marga. 

Þegar posar eru ekki aðgengilegir neyðist fólk í mörgum tilvikum til að reiða sig á aðstoð annarra, til dæmis með því að gefa upp PIN-númer sitt eða láta starfsfólk framkvæma greiðsluna. Slíkt skerðir bæði sjálfstæði og persónuvernd og getur haft áhrif á öryggi einstaklinga í daglegu lífi. 


Þótt dæmi finnist um jákvæðar lausnir í sumum löndum – þar sem notaðir eru talstuðningur, titringsmerki eða snertimerkingar – eru slíkar lausnir enn fáar og ekki almenn skylda.
Könnunin undirstrikar einnig að þrátt fyrir gildistöku evrópskra aðgengisreglna árið 2025 er raunveruleg breyting hæg. Eldri posar eru áfram í notkun og því geta aðgengishindranir haldist um árabil nema gripið verði til markvissra aðgerða. 
EBU leggur áherslu á að bæta þurfi stöðuna með skýrum kröfum og samræmdum lausnum.

Meðal lykiltillagna eru:

- Að allir posar bjóði upp á talstuðning og möguleika á hlustun (t.d. með heyrnartólum)
- Að áþreifanleg viðmið eða merkingar séu til staðar á skjánum
- Að settur verði evrópskur tæknistaðall svo notendur þurfi ekki að læra á hvern posa fyrir sig
- Að tryggt verði að núverandi, óaðgengilegir posar verði endurbættir eða teknir úr notkun 

Aðgengilegir posar eru forsenda þess að blindir og sjónskertir geti tekið fullan þátt í daglegu lífi og haft sjálfstæða stjórn á eigin fjármálum. Þessi könnun sýnir að enn er langt í land – en einnig að lausnirnar eru til staðar en það þarf að vera vilji fyrir breytingum.

Nánar má lesa skýrsluna hér: