Tilkynning frá kjörnefnd um framboð til formanns og stjórnar Blindrafélagsins

Á aðalfundi Blindrafélagsins þann 9. maí 2026 verður kosið í stöðu formanns, tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í stjórn Blindrafélagsins og ræður atkvæðafjöldi því hverjir taka sæti sem aðalmenn og varamenn.

Eftirtaldir hafa gefið kost á sér til formanns Blindrafélagsins:
Sigþór U. Hallfreðsson
 
Eftirtaldir hafa gefið kost á sér til stjórnarsetu hjá Blindrafélaginu:
Auður Hanna Guðmundsdóttir
Ásdís Evlalía Guðmundsdóttir
Halldór Sævar Guðbergsson
Iva Marín Adrichem
Rósa María Hjörvar
Sandra Dögg Guðmundsdóttir

Allir þessir frambjóðendur hafa verið úrskurðaðir kjörgengir samkvæmt lögum félagsins af kjörnefnd.
 
Fyrir hönd kjörnefndar Blindrafélagsins
Kristinn Halldór Einarsson,
framkvæmdastjóri Blindrafélagsins.