Vetrarhappdrætti Blindrafélagsins 2025 er hafið

Stuðningur til sjálfstæðis.

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfsemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Með því að kaupa happdrættismiða tekur þú virkan þátt í að styðja blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri til sjálfstæðis og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.

Vetrarhappdrætti Blindrafélagsins 2025 er hafið.

Happdrættismiðar hafa verið sendir sem valkröfur í heimabanka stuðningsaðila Blindrafélagsins merktir "Blindrafélagið - Happdrætti". Númerið á happdrættismiðanum er númerið á kröfunni. Hægt er að kaupa happdrættismiða á netinu með þessum hlekk, en einnig er hægt að kaupa miða á skrifstofu félagsins í Hamrahlíð 17 og í síma 525 0000.

Glæsilegir vinningar:
Kia Stonic Urban frá Öskju að verðmæti kr. 5.290.777
10 gjafabréf frá Erninum, hvert að verðmæti kr. 500.000
15 gjafabréf frá Smáralind, hvert að verðmæti kr. 100.000
25 ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr. 300.000
30 Bónusgjafakort, hvert að verðmæti kr. 100.000
20 Samsung Galaxy Tab A9+ Wifi (6/128GB), hver að verðmæti kr. 49.995
15 Samsung Galaxy S25 Ultra 512GB símar, hver að verðmæti kr. 269.995
15 Samsung Galaxy Z Flip7 256GB símar, hver að verðmæti kr. 209.995
50 gjafabréf frá Útilíf, hvert að verðmæti kr. 200.000

Alls 181 skattfrjálsir vinningar að verðmæti kr. 40.490.527

Upplag 60.000.
Dregið 8. desember 2025.

Stuðningur þinn er mikilvægur!