Fundargerð aðalfundar, 11. maí 2024

Fundargerð aðalfundar Blindrafélagsins 11. maí 2024 kl. 13:00 

 

Fundarsetning 

Formaður Blindrafélagsins Sigþór U. Hallfreðsson setti fundinn kl. 13:05. Hann minnti á siðareglur Blindrafélagsins. 

 

Kosning fundarstjóra og fundarritara 

Formaður gerði tillögu um að Hjörtur Heiðar Jónsson yrði fundarstjóri og Marjakaisa Matthíasson fundarritari. Tillagan var samþykkt. 

 

Staðfest var að fundurinn sé lögmætur. Stjórnin setti tvær fundarreglur: Það þarf tvo stuðningsmenn til að ná fram dagskrárbreytingartillögu og að fundarstjóra er heimilt að takmarka lengd og fjölda ummæla. 

 

Kynning fundarmanna 

Fundarmenn kynntu sig með nafni. Alls sóttu 50 félagsmenn fundinn: 45 í salnum og 5 rafrænt.   

 

Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar 

Fundargerðin var samþykkt samhljóða.   

 

Inntaka nýrra félaga 

Júlía Bríet Baldursdóttir las upp nöfn nýrra félagsmanna. Alls voru þeir 92 talsins. Þeir voru samþykktir í félagið.  

 

Látinna félaga minnst 

Júlía Bríet las upp nöfn þeirra félagsmanna sem létust á árinu. Þeir voru 50 talsins. Þeirra var minnst með einnar mínútu þögn.  

 

Skýrsla stjórnar um störf félagsins á síðastliðnu ári 

Formaður byrjaði á því að segja frá því að hjá félaginu starfa 21 einstaklingur í tæplega 13 stöðugildum og eru tólf af þeim blindir eða sjónskertir. 

 

Á árinu voru haldnir tveir félagsfundir: á fyrri fundinum var rætt um þjónustu sveitafélaga við blint og sjónskert fólk og á seinni fundinum voru kynntar tillögur um nýja örorku- og lífeyriskerfið og starfsemi Bjarkahlíðar sem sinnir þjónustu við þolendur ofbeldis.  

 

Traustmæling Gallups sýnir að 62% aðspurðra metur félagið mikils og 23% þekkir vel til félagsins.  

Hamrahlíð 17 er mikilvægur þjónustukjarni, Húsið hefur verið  tekið í gegn undanfarin ár og stóra verkefnið núna er stækkunin. Sjötta hæðin verður tekin í notkun í haust. Þetta er sjötta eða sjöunda breytingin og hafa allar viðbætur verið félagsmönnum til mikilla heilla. Nú er tilgangurinn að bæta aðstöðu Sjónstöðvarinnar. Stefnt er að því að færa augnlækna á 5. hæðina og að fá Hljóðbókasafnið aftur í húsið.  

Ferðaþjónustan er ein mikilvægasta þjónustan sem er í boði: 730 einstaklingar og eldri borgarar í nokkrum sveitafélögum nota þjónustuna. Samtals eru 14 sveitafélög með þennan samning.  

 

Tækniráðgjöfin er enn ákveðinn hornsteinn í þjónustu okkar við félagsmenn. Solutions radio er samstarfsaðilinn okkar við vefvarpið, og Readspeaker við vefþuluna. Við höfum gert prófanir á nýjum íslenskum talgervilsröddum. Nýjasta Android röddin Steinn er mjög góð viðbót við google röddina Önnu. Við höfum einnig unnið náið með framleiðenda Blindshell símans sem er snjallvæddur takkasími og við vonumst til að við finnum út úr því með framleiðandanum hvernig síminn gæti stutt notkun rafrænna skilríkja.  

 

Sigþór nefndi einnig allskonar viðburði: sjónlýsingarvikuna, flúðasigling foreldradeildar og Ungblind, Molar og kaffi, spaðaboltaæfingar, íslenskunámskeið fyrir erlenda félagsmenn og ýmsar skemmtanir. Allt þetta sýnir að starf félagsins er öflugt. Grundvöllurinn er traustur rekstur, gott starfsfólk og margþætt félagslíf.   

 

Umræður:  

Umræður snerust um hljóðbækur og hve fáir titlar koma út. Félagsmenn voru hvattir til að hafa samband við Hljóðbókasafnið og koma með óskir um efni. Einnig var bent á Marrakesh sáttmálann og réttinn til að fá bækur frá öðrum löndum.  

 

Spurt var nánar um viðgerðirnar og sagt var frá því að það þurfti að endurnýja þakið, og bæta við annarri lyftu í húsið. Einnig var spurt um aðgengisfulltrúa og sagði framkvæmdastjórinn að eins og er væri enginn í þessari stöðu en við sinnum málaflokknum: kaupum þjónustu frá Hlyni Þóri Agnarsyni. Auk þess starfar Rósa María Hjörvar við aðgengismál í ÖBI.   

 

Kynning og afgreiðsla ársreikninga félagsins og sjóða sem eru í eigu félagsins 

Gerður Þóra Björnsdóttir endurskoðandi kynnti fjárhagslega afkomu ársins 2023:  

tekjurnar voru 321,1 milljónir, gjöld 308 milljónir og afkoma 13,1 milljónir.   

Rekstrarafkoma árs er 5,8 milljónir í tap samanborið með 1,8 milljóna tap árið áður. 

 

Ársreikningarnir voru samþykktir samhljóða.  

 

Kosningar til formanns og stjórnar 

Kosning til formanns  

Bergvin Oddsson dró framboð sitt til baka, einnig framboðið til stjórnarsetu. Lesin var tilkynning frá honum. Hann var ósáttur við að fá ekki félagatal. Sigþór U. Hallfreðsson var því sjálfkjörinn formaður félagsins.  

 

Fengið var álit lögmanns varðandi afhendingu félagatals. Almenn regla er sú að félagatalið er einungis aðgengilegt í félaginu, ekki einstökum félagsmönnum.   

 

Kosning til stjórnar:  

Fimm voru í framboði, fjórir frambjóðendur kynntu sig á fundinum, en Þórarinn Þórhallsson var ekki á staðnum. Alls voru greidd 348 atkvæði og deildust þau þannig:  

 

Rósa María Hjörvar 89 

Sandra Dögg Guðmundsdóttir 74 

Ásdís Evlalía Guðmundsdóttir 74 

Þórarinn Þorhallsson 66 

Eliona Gjecaj 38 

 

Rósa María var því kjörin stjórnarmaður en var hlutkesti varpað á milli Ásdísar Evlalíu og Söndru Daggar og varð niðurstaðan að Sandra Dögg er aðalstjórnarmaður. Varamenn eru Ásdís Evlalía og Þórarinn.   

 

Árstillag félagsmanna og gjalddagi þess 

Stjórnin lagði til sömu upphæð, 4500 kr. sem árstillag með gjalddagi í febrúar og var það samþykkt samhljóða.  

 

Kosning í kjörnefnd 

Brynja Arthúrsdóttir, Gísli Helgason og Harpa Völundardóttir voru kosin sem aðalmenn í kjörnefndina. Varamaður er Hjalti Sigurðsson 

 

Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga 

Stjórnin lagði til Hjört Heiðar Jónsson og Jón Heiðar Daðason og voru þeir sjálfkjörnir.   

 

Aðalfundur ákveður laun stjórnarmanna 

Stjórnin lagði til að laun stjórnarmanna verði 11.000 kr. á hvern fund og var það samþykkt samhljóða.  

 

Önnur mál. 

Gísli Helgason svaraði spurningu um lestur á hljóðbókum. Hér áður fyrr var alltaf hlustað á bækurnar þegar þær voru hljóðritaðar en nú les hver og einn lesari og hljóðritar sig sjálfur. Þá vilja því miður nokkrar villur slæðast inn. 

 

Þá vék hann að máli sem hvíldi þungt á aðalfundarfólki. Það er vegna tveggja blaðagreina sem birtust í Morgunblaðinu og tveir félagsmenn höfðu skrifað. Önnur birtist rétt áður en hausthappdrættið fór í gang og hin rétt fyrir þennan aðalfund. Önnur fjallaði um „litla lýðræðisfélagið“ og hin „um siðblindrafélagið“. Gísli sagði m.a. að greinarnar væru fullar af sárindum og það besta sem greinaskrifendur gætu gert væri að sættast við sjálfa sig og fyrirgefa.  

 

Sigríður Björnsdóttir minnti á mikilvægi þess að setja bláa miða á illa lagða bíla.  

 

Ályktun stjórnar var lesin upp og samþykkt samhljóða.  

 

Ályktun Aðalfundar Blindrafélagsins 2024 

Aðalfundur Blindrafélagsins 2024 hvetur stjórnvöld til að huga sérstaklega að þörfum blindra og sjónskertra einstaklinga í allri stefnumótun og allri þróun á nýjum lausnum innan upplýsingatækni og innleiðingu stafrænnar þjónustu. Aðalfundur ítrekar einnig mikilvægi þess að viðhalda því aðgengi sem þó hefur áunnist og krefur stjórnvöld um að standa vörð um sjálfstæði og starfsemi Hljóðbókasafns Íslands, en safnið er gott dæmi um það hvernig hægt er að veita aðgengi að efni sem annars væri okkur lokuð bók. 

 

Greinargerð: 

Blindir og sjónskertir hafa lengi verið leiðandi afl í þróun tæknilausna, enda er það í okkar hag að samfélagið verði eins stafrænt og kostur er. Því miður hefur borið á því að þær lausnir sem þróaðar séu ekki aðgengilegar okkar hóp, þó að þær ættu að geta verið það. Vandinn virðist oft á tíðum vera skortur á heilstæðri stefnumótun og eftirfylgd. Við hvetjum stjórnvöld til þess að tryggja að allar þær lausnir sem þróaðar eru séu í samræmi við WCAG 2.1 staðalinn og það sé þannig tryggt að blindir og sjónskertir hafi aðgang af þeim. Blindir og sjónskertir eiga, og skulu eiga rétt á, að sækja sér upplýsingar, hvort sem það er vegna vinnu eða náms, eða til dægrastyttingar, og þá er það stjórnvalda að tryggja jafnan rétt okkar til upplýsinga í lýðræðis og velferðarþjóðfélagi. 

 

Fundarstjóri tilkynnti að hægt væri að skoða 6. hæðina strax eftir fundinn.  

 

Formaður sleit fundi kl.16:00 

 

Fundargerðina ritaði Marjakaisa Matthíasson