Fundargerð stjórnar nr. 12 2019-2020

Fundargerð 12. stjórnarfundar Blindrafélagsins, starfsárið 2019 – 2020, haldinn föstudaginn 31. janúar kl. 16:00 að Hamrahlíð 17.

Mættir: Sigþór U. Hallfreðsson (SUH) formaður, Kaisu Hynninen (KH) ritari, Eyþór Kamban Þrastarson (EKÞ) gjaldkeri, Dagný Kristmannsdóttir (DK) varamaður, Rósa Ragnarsdóttir (RR) varamaður, Þórarinn Þórhallsson varamaður, tekur sæti LS sem aðalmaður.

Forföll: Lilja Sveinsdóttir (LS), Guðmundur Rafn Bjarnason (GRB), Hlynur Þór Agnarsson (HÞS). Kristinn H. Einarsson (KHE)

1.     Fundarsetning

SUH setti fundinn, eina málið á dagskrá er stefnumótun fyrir Blindrafélagið.

2   Stefnumótun.

Lokið við að meta stöðuna á fyrirliggjandi sóknaráætlun og tillögur ræddar um áherslur og verkefni til næstu ára. Farið yfir skilgreiningu félagsins, gildi og byrjað á ytra og innra stöðumati.

Niðurstaða stefnumótunar og sóknaráætlun Blindrafélagsins verður birt í stefnumótunarskýrslu.

Fundi slitið kl. 20:00.

Fundargerð ritaði Sigþór U. Hallfreðsson.