Boð á aðalfund Blindrafélagsins, 11. maí 2024.

Stjórn Blindrafélagsins boðar til aðalfundar félagsins. Fundurinn verður haldinn laugardaginn 11. maí 2024 kl. 13:00. Fundurinn verður haldinn í Hamrahlíð 17 en einnig verður hægt að sitja hann stafrænt.

Athygli er vakin á því að réttur til setu á aðalfundi, og þar með talið kjörgengi, fellur niður ef félagsgjöld eru ógreidd.

Tillögum til breytinga á lögum félagsins þarf að skila á netfang framkvæmdastjóra khe@blind.is fyrir laugardaginn 20. apríl 2024, kl. 13:00.

Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.

Kallað er eftir framboðum í embætti formanns ásamt tveggja aðalstjórnarmanna og tveggja varamanna.
Kjörtímabilið er tvö ár. Framboðum skal skila til Kristins Halldórs Einarssonar, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins, á netfangið khe@blind.is eigi síðar en þremur vikum fyrir boðaðan aðalfund og rennur því framboðsfrestur út kl. 13:00 laugardaginn 20. apríl.

Hægt er að lesa nánar um aðalfundi félagsins í lögum Blindrafélagsins (8., 9. og 10. gr.).

Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins,
Kristinn Halldór Einarsson.
Framkvæmdastjóri.