Boð á aðalfund Blindrafélagsins.

 

Stjórn Blindrafélagsins boðar til aðalfundar félagsins. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 26. maí 2022 kl. 13:00. Fundurinn verður haldinn í Hamrahlíð 17 en einnig verður hægt að sitja hann stafrænt.

Athygli er vakin á því að réttur til setu á aðalfundi, og þar með talið kjörgengi, fellur niður ef félagsgjöld eru ógreidd.  

Tillögum til breytinga á lögum félagsins þarf að skila til skrifstofu Blindrafélagsins fyrir fimmtudaginn 5. maí 2022, kl. 13:00.  

Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.   

Auglýst er eftir framboðum í embætti formanns ásamt tveggja aðalstjórnarmanna og tveggja varamanna.  
Kjörtímabilið er tvö ár. Minnt er á að framboðum skal skila á skrifstofu félagsins eigi síðar en þremur vikum fyrir boðaðan aðalfund og rennur því framboðsfrestur út kl. 13:00 fimmtudaginn 5. maí.  

Framboðum má skila í tölvupósti, á venjulegu letri eða punktaletri. Framboð skal senda með sannarlegum hætti bréflega, eða í tölvupósti til Kristins Halldórs Einarssonar, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins, á netfangið khe@blind.is.  

 

Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins, 
Kristinn Halldór Einarsson. 
Framkvæmdastjóri.