Íbuð 307 til leigu

Blindrafélagið auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð 307 í Hamrahlíð 17. Íbúðin er 78 fm. og skiptist í stofu, eldhús, bað og tvö svefnherbergi. Mánaðarleiga er um 120.000 kr. að viðbættum 6.200 kr. húsgjaldi.

Stefnt er að því að leigja íbúðina út í desember 2021 .

Leiguíbúðum Blindrafélagsins er úthlutað til félagsmanna á félagslegum forsendum þar sem tillit er tekið til tekna, eigna og félagslegra aðstæðna.

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að leiguíbúðir Blindrafélagsins eru ekki þjónustuíbúðir

Umsókn ásamt afriti af skattframtali fyrir 2020 skal sendar í seinasta lagi 6. desember 2021 á netfangið khe@blind.is eða með bréfi á póstfangið:

Blindrafélagið,
BT: Kristinn Halldór Einarsson,
Hamrahlíð 17,
105 Reykjavík.