Íbúð til leigu í Hamrahlíð 17.

 

Blindrafélagið auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð 311 í Hamrahlíð 17. Íbúðin er 58 fm og skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og bað Mánaðarleiga er um 120.000 þúsund krónur að viðbættum 7.200 kr húsgjaldi. Stefnt er að því að leigja íbúðina út frá og með 15. nóvember 2022.

Leiguíbúðum Blindrafélagsins er úthlutað á félagslegum forsendum þar sem tillit er tekið til tekna, eigna og félagslegra aðstæðna.

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að leiguíbúðir Blindrafélagsins eru ekki þjónustuíbúðir.

Umsókn ásamt afriti af skattframtali fyrir árið 2021, skal sendar í seinasta lagi 20. október 2022 á khe@blind.is 
eða
Blindrafélagið,
Kristinn Halldór Einarsson,
Hamrahlíð 17,
105 Reykjavík.

Á heimasíðu Blindrafélagsins blind.is er að finna reglur varðandi útleigu á íbúðum félagsins.

Kristinn Halldór Einarsson