Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir nýr framkvæmdastjóri Almannaróms

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Almannaróms, miðstöðvar um máltækni. Að Almannarómi standa háskóla- og rannsóknastofnanir, fyrirtæki og félagasamtök. Meginhlutverk Almannaróms er að tryggja að íslenska standi jafnfætis öðrum tungumálum í hinu stafræna umhverfi og mun framkvæmdastjóri meðal annars bera ábyrgð á gerð samninga við stærstu tæknifyrirtæki heims og úthlutun fjármagns til rannsókna og innviðauppbyggingar á sviði máltækni.    


Undanfarin ár hefur Jóhanna Vigdís starfað sem framkvæmdastjóri atvinnu- og alþjóðatengsla hjá Háskólanum í Reykjavík og  staðið fyrir uppbyggingu atvinnulífstengsla HR. Áður var hún forstöðumaður markaðssviðs HR. Jóhanna Vigdís hefur jafnframt gegnt stjórnendastöðum við Listahátíð í Reykjavík, hjá Straumi fjárfestingarbanka, Deloitte og Borgarleikhúsinu.  

Stefanía Guðrún Halldórsdóttir stjórnarformaður Almannaróms:

„Það er okkur í Almannrómi mikið fagnaðarefni að fá Jóhönnu til liðs við okkur. Í störfum sínum hjá HR hefur Jóhanna Vigdís sýnt að hún nær árangri við að byggja upp alþjóðleg tengsl og að treysta sterk tengsl við atvinnulíf og stofnanir á Íslandi. Einnig mun reynsla hennar af rannsóknum og háskólaumhverfi nýtast einkar vel til að leiða og móta þetta mikilvæga verkefni.“ 


Jóhanna Vigdís lauk AMP gráðu hjá IESE Business School í Barcelóna árið 2015, MBA námi frá HR 2005 og meistaraprófi frá Háskólanum í Edinborg árið 2003. Jóhanna Vigdís útskrifaðist með BA gráðu í bókmenntum frá Háskóla Íslands árið 1998.

Jóhanna Vigdís er gift Riaan Dreyer og saman eiga þau 4 börn.

Almannarómur er sjáfseignarstofnun um eflingu máltæknilausna fyrir íslensku og vinnur að því að tryggja að íslenskan standi jafnfætis öðrum tungumálum í tækniheiminum. Almannarómur rekur miðstöð um máltækni samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið sem byggður er á verkáætlun um máltækni 2018-2022.