Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, leitar að framtíðarstarfsmanni í starf fjáröflunar- og kynningarfulltrúa í fullt starf.
Meginhlutverk fjáröflunar- og kynningafulltrúa Blindrafélagsins er að hafa umsjón með fjáröflunum, kynningarverkefnum og samfélagsmiðlum félagsins. Starfið er hluti af kjarnateymi á skrifstofu félagsins og er unnið að mestu á skrifstofunni í Hamrahlíð 17. Hluti af starfinu er einnig að aðstoða á skrifstofu við nnur almenn skrifstofustörf eins og við afgreiðslu í verslun og símasvörun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með Bakhjarlakerfi og styrktarverkefnum Blindrafélagsins.
- Verkefni tengd útgáfu Víðsjá, tímariti Blindrafélagsins, eins og söfnun auglýsinga, prentun, umbrot, pökkun og dreifingu.
- Verkefni tengd vor- og hausthappdrætti félagsins, eins og öflun vinninga, auglýsinga, prentun og dreifingu.
- Fyrirtækjasafnanir og umsjón samvinnuverkefna.
- Verkefni tengt leiðsöguhundadagatali Blindrafélagsins, eins og umsjón með hönnun, tilboð í prentun, pökkun og dreifingu.
- Umsjón með samfélagsmiðlum félagsins eins og Facebook, Instagram, vefsíðu félagsins og öðrum miðlum félagsins á netinu.
- Umsjón með kynningum á félaginu, eins og viðburðum, verkefnum eins og vinir leiðsöguhunda, og annarri starfsemi félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Góð reynsla af notkun á Microsoft Teams, Outlook, Excel og öðrum Office-hugbúnaði.
- Þekking og reynsla af bókhaldskerfi eins og DK eða sambærilegu kerfi er æskileg.
- Góð reynsla og þekking á umsjón samfélagsmiðla eins og Facebook og Instagram.
- Þekking og reynsla af Mailchimp er kostur.
Hjá Blindrafélaginu starfa um 19 manns, þar af um 10 á skrifstofu félagsins, í Húsi Blindrafélagsins í Hamrahlíð 17. Mötuneyti er í húsinu.
Hægt er að sækja um starfið gegnum vefsíðuna Alfreð með að smella á þennan hlekk.