Morgunverðarfundur, Þjónustan við okkar fólk – staðan, tækifærin, framtíðin. 13. október

 

 

Í tilefni af alþjóðlegum sjónverndardegi, þann 13. október og degi hvíta stafsins, 15. október efnir Blindrafélagið til kynningar á niðurstöðum könnunar á þjónustu við blint og sjónskert fólk sem ráðgjafafyrirtækið Intellecta vann fyrir Blindrafélagið. Um er að ræða þjónustu veitta af Blindrafélaginu, Hljóðbókasafni Íslands og Sjónstöðinni - Þjónustu og þekkingarmiðstöðinni fyrir blinda, sjónskerta og fólk með samþætta sjón og heyrnarskerðingu.

Morgunverðarfundurinn verður haldinn 13. október á alþjóðlegum sjónverndardegi í Hamrahlíð 17, Húsi Blindrafélagsins. Morgunverður verður borinn fram frá 8:30 og stendur fundurinn frá klukkan 9:00 til 10:00.

Fundurinn ber yfirskriftina: Þjónustan við okkar fólk – staðan, tækifærin, framtíðin.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Fundarsetning 

Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins

Intellecta – Stöðumat á þjónustu

Svanur Þorvaldsson

Sjónstöðin – Þjónustan, staðan þá og nú.

Elfa Svanhildur Hermannsdóttir, forstjóri Sjónstöðvarinnar

Hljóðbókasafn Íslands – Safn á fleiri tungumálum, fyrir blinda og sjónskerta

Einar Hrafnsson

Blindrafélagið – Hið almenna verði aðgengilegt

Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins

Fyrirspurnir og umræður.

 

Fundarstjóri verður Unnur Þöll Benediktsdóttir.  

                                        

Vinsamlega tilkynnið um þátttöku á blind@blind.is eða í síma 525 0000