Nýjar íslenskar raddir fyrir NVDA.

Nú er komin út talgervilsviðbót fyrir NVDA sem gefur aðgang að talgervilsröddum Google í skjálestrarforritinu. Eru þetta ótal tungumál og raddir sem hægt er að sækja og nota, notendum að kostnaðarlausu. Nú er hægt að vera með uppsettar margar raddir og tungumál og auðveldlega hægt að skipta á milli þeirra.

Uppsetning á Google TTS viðbót í NVDA.

Opnaðu NVDA valmyndina og viðbótarverslunina (Add-on Store):

Ýttu á NVDA + N til að opna NVDA valmyndina. Þú heyrir NVDA segja „NVDA menu“ (eða „NVDA valmynd“). Farðu í Tól (Tools) og veldu Viðbótaverslun (Add-on Store). Hér getur komið upp viðvörunargluggi með upplýsingum um þær hættur sem geta fylgt því að setja upp viðbætur. Veldu að samþykkja og halda áfram. Glugginn „NVDA Addon Store“ opnast og skjálesarinn les upp lista yfir tiltækar viðbætur.

Finndu Google TTS:

Notaðu Alt + S til að komast í leitar innsláttargluggann. Skrifaðu Google TTS í leitarreitinn (eða ýttu á Tab þar til þú kemst í listann yfir viðbætur og notaðu örvatakkana til að finna viðbótina). Viðbótin heitir Google TTS for NVDA.

Settu viðbótina upp:

Passaðu að Google TTS sé valin í listanum, ýttu á Alt + C til að opna aðgerðarlistann (Actions) eða notaðu Tab takkann þar til þú finnur takkann og ýttu á Enter til að virkja hann. Í valmyndinni sem nú er opin skaltu velja Install og ýta á Enter.

Endurræstu NVDA:

Nú ýtir þú á Esc hnappinn til að loka Viðbótaversluninni. NVDA mun spyrja hvort þú viljir endurræsa skjálesarann. Veldu Já (Yes) og ýttu á Enter. NVDA endurræsir sig og gefur frá sér stutt hljóðmerki.

Veldu Google TTS sem talgervil:

Ýttu á NVDA + Control + S til að opna gluggann fyrir val á talgervli. Veldu Google TTS for NVDA í listanum og ýttu á Enter.

Ef engar raddir eru uppsettar fyrir Google TTS kemur upp viðvörun og býður þér að sækja raddir núna áður en skipt er yfir í Google TTS talgervilsvélina. Passaðu að setja upp raddir fyrir Google TTS áður en þú skiptir yfir í talgervilsvélina því ef engar raddir eru uppsettar mun skjálesturinn hætta að virka.

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar fyrir uppsetningu á röddum og auka tungumálum fyrir Google TTS fyrir NVDA.

Sækja auka raddir og tungumál fyrir Google TTS fyrir NVDA.

Þegar Google TTS viðbótin er uppsett, er hægt að fara í valmynd NVDA með að nota NVDA + N, velja Tools og svo Google TTS Voice Manager. Einnig er hægt að nota NVDA + Ctrl + Shift + G til að komast beint í uppsetningu á röddum og tungumálum.

Notaðu örvahnappana til að finna Download flipann. Notaðu Tab til að finna Filter by Language og veldu í þeim lista til dæmis Icelandic. Til að velja allar raddir fyrir þetta tungumál er hægt að velja Check all voice packages, en einnig er hægt að nota Tab og fara í listann yfir raddirnar og haka við þær raddir sem á að sækja.

Þegar búið er að merkja við þær raddir og tungumál sem á að sækja og setja upp, er hægt að nota Tab til að finna hnappinn Download checked voice packages, eða Alt + D til að fara beint í aðgerðina.

Stillingar fyrir uppsettar Google TTS raddir og tungumál.

Til að komast í stillingar fyrir Google TTS raddirnar er fljótlegast að nota NVDA + N, velja Valkostir og svo Settings. Í stillingarlistanum er hægt að finna Google TTS stillingarnar. Notaðu örvahnappana upp og niður til að finna þær í listanum.

Hér koma upp ýmsir valmöguleikar fyrir raddir og tungumál. Hægt er að setja upp sérstaka prófíla fyrir tungumál og stilla raddirnar sem á að nota þegar tungumálið er notað. Hægt er að velja að nota sjálfvirkar stillingar til að skipta á milli tungumála, en einnig er hægt að velja sjálfur raddir og stillingar með að nota raddhjólið í NVDA sem er komist í með að nota NVDA + Cntrl + Örvar. Til að handvirkt breyta á milli tungumála og radda, þarf að taka hakið úr Use Automatic language profiles, annars skiptir Google TTS sjálft á milli tungumála ef það nær að greina tungumál og rödd er uppsett fyrir það tungumál.