Nýtt blað af Víðsjá er komið út.

Í nýjasta tölublaði Víðsjár er meðal annars fjallað um sjónþreytu og sjóntruflanir eftir heilablóðfall og rætt við Rósu Maríu og Elionu um doktorsnám þeirra og aðgengi að námi.
Þá er rætt við Gunnar Má Óskarsson sem segir frá miklum breytingum í lífinu, nýjum leiðum til að halda sjálfstæði sínu og mikilvægi þess að hitta fólk sem skilur.

Ritstjórar eru Marjakaisa Matthíasson og Mónika Elísabet Kjartansdóttir.
Hægt er að hlusta á Víðsjá í vefvarpinu undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu, og Víðsjá, tímarit Blindrafélagsins“.

Einnig er hægt að skoða og hlusta á blaðið á heimasíðu Blindrafélagsins, blind.is.