Samfélagslampinn 2009

Tilgangurinn með veitingu Samfélagslampans er vekja athygli á fyrirtækjum, stofnunum og/eða tilteknum aðgerðum eða verkefnum, sem með einum eða öðrum hætti hafa stuðlað að auknu sjálfstæði blindra og sjónskertra einstaklinga.

Samfélagslampi Blindrafélagsins, er einstakur gripur, handsmíðaður af Sigmari Ó Maríussyni, gullsmíðameistara. Um er að ræða upphleypta lágmynd úr silfri sem sýnir lampann úr merki Blindrafélagsins. Lampinn er festur á sagaða og slípaða steinflís úr skagfirsku blágrýti. Steinflísin stendur á tveimur járnpinnum á blágrýtisfæti. Á fætinum er síðan silfurskjöldur með áletrun um verkið og tilefni þess.

Bónus og Reykjavíkurborg.

Samfélagslampi Blindrafélagsins var í fyrsta sinn veittur í 70 ára afmælisfagnaði Blindraféalgsins á Nordica Hóteli þann 19 ágúst 2009. Lampinn var veittur tveimur aðilum: Bónus og Reykjavíkurborg.

Áletranirnar voru eftirfarandi:

Stuðningur til sjálfstæðis

Samfélagslampi Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi
Veittur verslunum Bónuss árið 2009 fyrir áralangt traust samstarf við Blindravinnustofuna

Stuðningur til sjálfstæðis

Samfélagslampi Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi
Veittur Reykjavíkurborg árið 2009 fyrir ferðaþjónustu blindra.