Sjónstöðin heldur námskeið fyrir áhugasama blinda og sjónskerta um leiðsöguhunda.

Sjónstöðin tilkynnir að haldið verður námskeið fyrir blinda og sjónskerta um leiðsöguhunda. Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja læra um notkun, umhirðu og þjálfun leiðsöguhunda og er skilyrði þess að eiga inni virka umsókn um leiðsöguhund.

Fyrri hluti námskeiðsins fer fram 3. september og samanstendur m.a. af fræðslu og samtali um grunnatriði hundaþjálfunar, umhirðu og umönnun hunda, þjálfunarferli og fleira. Seinni hluti námskeiðsins verður haldinn 16.-18. september og mun innihalda áframhaldandi fræðslu svo og verklega kennslu þar sem þátttakendur fá tækifæri til að prófa leiðsöguhund undir leiðsögn hundaþjálfara.

Námskeiðið fer fram á ensku en starfsmaður frá Sjónstöðinni mun aðstoða með þýðingar fyrir þá sem vilja. Vinsamlegast setjið það í athugasemd við skráningu ef óskað er eftir aðstoð vegna þessa.

Staðsetning og tími:
- Fyrri hluti 3. september kl. 13:00-16:00 í gegnum fjarfundarbúnað heima eða hjá Sjónstöðinni.
- Seinni hluti 16.-18. september í húsnæði Sjónstöðvarinnar að Hamrahlíð 17.

Leiðbeinendur námskeiðsins eru leiðsöguhundaþjálfarar frá Kustmarkens leiðsöghundaræktun í Svíþjóð.

Hægt er að skrá sig á námskeiðið hjá Sjónstöðinni í síma 545-5800 eða með tölvupósti sjonstodin@sjonstodin.is. Síðasti dagur til skráningar er miðvikudagurinn 27. ágúst.