Skíðagöngunámskeið á Ströndum, helgina 15. -17. mars.

Heljarmannafélagið býður áhugasömum félagsmönnum Blindrafélagsins að taka þátt í gönguskíðanámskeiði sem fer fram í Selárdal á Ströndum dagana 15.-17. mars nk.

Skíðafélag Strandamanna sér um kennslu og fer hún fram alla helgina, þ.e. frá föstudegi til sunnudags. Námskeiðið hentar fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna þar sem öll grundvallaratriði skíðagöngu verða kennd.

Gist verður í tveggja manna herbergjum við þorpið Drangsnes. Þátttökugjald er 35.000 krónur. Innifalið í verðinu er ferðir til og frá Drangsnesi, kennsla, gisting og máltíðir. Þátttakendur þurfa að sjá um að leigja skíðabúnaðinn sjálfir.

Það er pláss fyrir 14 þátttakendur í ferðina. Skráning í ferðina fer fram á skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525-0000 eða á netfangið afgreidsla@blind.is og er skráningafrestur til 1. mars. Athugið að greiða þarf þátttökugjald við skráningu í ferðina ásamt því að láta vita ef einhver fæðuóþol eða fæðuofnæmi eru til staðar.

Með útivistarkveðju

Heljarmannafélagið