Á aðalfundi Blindrafélagsins þann 10. maí næstkomandi verður kosið í stöður tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í stjórn Blindrafélagsins og ræður atkvæðafjöldi því hverjir taka sæti sem aðalmenn og varamenn.
Eftirtaldir hafa gefið kost á sér:
Guðmundur Rafn Bjarnason
Kaisu Kukka-Maaria Hynninen
Unnur Þöll Benediktsdóttir
Þorkell Jóhann Steindal
Allir þessir frambjóðendur hafa verið úrskurðaðir kjörgengir samkvæmt lögum félagsins af kjörnefnd.
Fyrir hönd kjörnefndar Blindrafélagsins,
Kristinn Halldór Einarsson
Framkvæmdastjóri