Valdar greinar, 7. tölublað 43. árgangur 2018.

Valdar greinar, 7. tölublað 43. árgangur 2018.
Útgefandi: Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi.
Ritstjóri: Gísli Helgason. Ábyrgðarmaður: Sigþór U. Hallfreðsson.
Útgáfudagur 6. apríl 2018.
Heildartími: 3 klukkustundir og 18 mínútur.
Flytjendur efnis auk ritstjóra, Dóru og Karls: Hafþór Ragnarsson, Sigurgeir Jónsson, Bragi Þórðarson, Sigþór U. Hallfreðsson, Arnþór Helgason, Ólafur Þór Jónsson, Kristján Pétursson ásamt fundarmönnum á félagsfundi Blindrafélagsins 22. mars sl.
Hljóðritað hjá Hljóðbók slf. í apríl 2018.
Allar hljóðskrár eru á mp3 sniði.
Athugið að fyrir neðan nafn hverrar greinar er lengd hennar í mínútum og sekúndum.

Efnisyfirlit:

01a Kynning og efnisyfirlit.
6:34 mín.

01b Boðun á aðalfund Blindrafélagsins 12. maí nk.
4:26 mín.

Tilkynningar og fréttnæmt efni:

01c Tilkynning frá árinu 1976 birt til gamans.
Þáverandi húsvörður í Hamrahlíð 17, Birgir Andrésson síðar myndlistarmaður sá ástæðu til þess að birta tilkynningu til íbúa Hamrahlíðar 17, af því að hann fékk yfir sig innihald súpupotts þegar hann var að hreinsa sorpgeymsluna að Hamrahlíð 17. en þess skal getið að á því ári voru áskrifendur að Völdum greinum nær allir búsettir þar. Þessi tilkynning fór mjög fyrir brjóstið á sumum forráðamönnum félagsins á þeim tíma.
3:08 mín.

01d Sunnudagsganga á vegum ferða og útivistarnefndar 8. apríl.
1:10 mín.

01e Ungmennafundur á Akureyri 9. apríl.
1:02 mín.

01f Prjónakaffi 17. apríl.
0:24 mín.

01g Opið hús á laugardegi 21. apríl.
0:15 mín.

01h Sjóðurinn Blind börn á Íslandi auglýsir eftir styrkumsóknum.
1:14 mín.

01i Auglýsing um Sumarskóla Sameinuðu þjóðanna í sumar.
1:39 mín.

01j Tilkynning frá hátíðinni List án landamæra.
1:59 mín.

01k Áhugaverð ferð til Feneyja í sumar.
0:25 mín.

01l Vegur guðanna - ferð til Ítalíu í sumar, sérstaklega sniðin að þörfum blindra og sjónskertra.
0:38 mín.

Annað efni:

02 Hafþór Ragnarsson kynnir nýjar hljóðbækur frá Hljóðbókasafni Íslands.
15:15 mín.

03 Sagt frá gúmmíbátavæðingu íslenska skipaflotans. Frásögnin er eftir Sigurgeir Jónsson kennara í Vestmannaeyjum, en frásögnin er af Facebook og myndskreytt eftir Kristján Óskarsson. Birt með leyfi.
11:01 mín.

04 Farið upp á Akranes í heimsókn til Félags eldri borgara þar. Bragi Þórðarson rithöfundur og fyrrum bókaútgefandi flutti bráðskemmtilegt erindi um Akraneskaupstað og sagði skemmtisögur þaðan.
14:18 mín.

05 Komið við í Stykkishólmi þar sem Sigþór U. Hallfreðsson formaður Blindrafélagsins segir okkur frá einu sögufrægu húsi þar, sem kallað er Norska húsið. Sigþór upplýsir einnig um hvort hólmarar tali enn dönsku á sunnudögum.
3:35 mín.

06 Arnþór Helgason segir frá tilraun til þess að stofna blindrafélag á Íslandi árið 1918, fyrir einni öld. Þetta er af Völdum greinum frá árinu 1981.
1:22 mín.

07 Um þetta leiti fyrir ári urðu nokkur þáttaskil í húsi Blindrafélagsins í Hamrahlíð 17. Upphaflega var húsið hugsað m.a. fyrir vinnustofur blinds og sjónskerts fólks og hafa ýmsir verið með vinnustofur þar.

Ólafur Þór Jónsson sjúkranuddari starfrækti nudd og gufubaðstofu þar um rúmlega 40 ára skeið. Endurflutt verður viðtal Gísla Helgasonar við hann frá árinu 2009, en þar segir Óli frá ýmsu og fjallar m.a. um framtíðarsýn sína á Blindrafélaginu.
20:53 mín.

Félagsfundur í Blindrafélaginu haldinn 22. mars 2018.

Efni fundarins:

Kynning á Gallup-könnunum fyrir Blindrafélagið og sagt frá alheimsráðstefnu RP international í sumar og á Íslandi 2020.
Fundarstjóri: Eyþór Kamban þrastarson, fundarritari: Gísli Helgason.
Heildartími: 1 klst. og 47 mín.

01 Fundarsetning kl. 17:00 með nokkrum orðum formanns, kynning fundarmanna, kjör fundarstjóra og fundarritara, fundargerð síðasta félagsfundar frá 9. nóvember lögð fram  og borin upp til samþykktar.
15:09 mín.

Kynning á þremur skoðanakönnunum Gallup fyrir Blindrafélagið, en þetta er fyrsta kynning á nýjum könnunum.
Kristján Pétursson frá Gallup kynnir.

02a Könnun á meðal almennings, umræður og fyrirspurnir.
Til máls tóku: Magnús Jóel Jónsson, Steinar Björgvinsson, Sigþór U. Hallfreðsson.
21:48 mín.

02b könnun á meðal stuðningsmanna Blindrafélagsins. Umræður og fyrirspurnir.
Til máls tóku: Karl Berntsen, Kristinn Halldór Einarsson, Magnús Jóel Jónsson, Gísli Helgason.
15:42 mín.

02c könnun á meðal félagsmanna. Umræður og fyrirspurnir. 
Til máls tóku: Rósa María Hjörvar, Gísli Helgason, Sigurjón Einarsson, Rósa Ragnarsdóttir, Sigþór U. Hallfreðsson.
26:58 mín.

03 Helgi Hjörvar formaður undirbúningsnefndar alheimsráðstefnu Retina international á Íslandi 2020 segir frá fyrirhugaðri ráðstefnu og alheimsráðstefnu Retina international sem haldin var á Nýja Sjálandi í sumar. Umræður. Til máls tóku: Guðrún Skúladóttir, Sigþór U. Hallfreðsson, Rósa Ragnarsdóttir, Kristinn Halldór Einarsson.
22:53 mín.

04 Önnur mál og fundarslit.
Til máls tóku: Rósa María Hjörvar, Baldur Snær Sigurðsson, Sigþór U. Hallfreðsson sem sleit fundi
Fundi slitið kl. 19:10.