Skráning og gögn fyrir aðalfund Blindrafélagsins 9. maí 2026.

Hægt er að skrá sig á aðalfundinn hér á heimasíðu félagsins, með því að senda póst á afgreidsla@blind.is eða með þvi að hringja í síma 525 0000 á skrifstofutíma.

Á sama hátt er óskað eftir kjörgögnum.

Opnað verður fyrir rafræna atkvæðagreiðslu á skrifstofu félagsins þriðjudaginn 28. apríl og er hægt að kjósa á opnunartíma skrifstofunnar fram til kl. 15:00 föstudaginn 8. maí.

Félagsmenn geta greitt atkvæði með eftirfarandi hætti:

a) Í rafrænni kosningu í aðgengilegu og öruggu kosningakerfi.
b) Í rafrænni kosningu með aðstoð frá skrifstofu félagsins.
c) Í rafrænni kosningu á aðalfundi.

Kynning á frambjóðendum til stjórnar Blindrafélagsins.

Kosið verður í stöðu tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í stjórn Blindrafélagsins og ræður atkvæðafjöldi því hverjir taka sæti sem aðalmenn og varamenn.

Eftirtaldir hafa gefið kost á sér:

Framboð til formanns Blindrafélagsins:
Sigþór U. Hallfreðsson er einn í framboði til formanns og er því sjálfkjörinn. 

Framboð til stjórnarsetu hjá Blindrafélaginu:
Auður Hanna Guðmundsdóttir.
Ásdís Evlalía Guðmundsdóttir.
Halldór Sævar Guðbergsson.
Iva Marín Adrichem.
Rósa María Hjörvar.
Sandra Dögg Guðmundsdóttir.

Ársskýrsla Blindrafélagsins fyrir starfsárið 2025-2026.

Skýrsluna má lesa hér á PDF-sniði.

Skýrslan er einnig aðgengileg í Vefvarpinu á daisy formati.