Ályktun – Yfirborðsfrágangur göngusvæða án óreiðu

Ályktun aðalfundar Blindrafélagsins, 9. maí 2026 

Aðalfundur Blindrafélagsins haldinn 9. maí 2026, hvetur Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög til að hætta notkun mismunandi litaðs yfirborðs og ruglandi mynstra við lagningu göngusvæða utandyra. 
 
Í leiðbeiningunum „Algild hönnun utandyra“, sem ÖBÍ – Réttindasamtök gaf út árið 2017, kemur fram að óreiða í yfirborði og marglitt yfirborð án skýrrar gönguleiðar geti valdið óöryggi og verulegum erfiðleikum, einkum fyrir sjónskert fólk, fólk með ákominn heilaskaða og flogaveiki, auk þess sem slíkar lausnir geti ruglað leiðsöguhunda. 
 
Sama sjónarmið kemur skýrt fram í opinberu leiðbeiningaritinu „Hönnun fyrir alla – Algild hönnun utandyra“, sem unnið var af Verkís og gefið út af Vegagerðinni og Reykjavíkurborg árið 2019, þar sem varað er sérstaklega við marglituðu yfirborði og flóknum mynstrum á göngusvæðum. 
 
Sem dæmi um mjög erfið og illa aðgengileg svæði má nefna gönguleiðir um Borgartúni og við Hlemm. 
 
Blindrafélagið hvetur sveitarfélög til að leita annarra leiða til að lífga upp á almenn útisvæði en með litaskiptingu eða mynstrum í gönguleiðum og leggur áherslu á að þær leiðbeiningar sem hér er vísað til verði lagðar til grundvallar við skipulag og hönnun útisvæða. 
 
Blindrafélagið fagnar góðu samstarfi við aðgengisfulltrúa Reykjavíkurborgar og lýsir vilja til áframhaldandi samstarfs um að bæta aðgengi blindra og sjónskertra. 

 

Tilvísanir.