Blindrafélagið fagnar 87 ára afmæli

Í dag, 19. ágúst, fagnar Blindrafélagið 87 ára afmæli.

Blindrafélagið var stofnað árið 1939 af blindu og sjónskertu fólki sem vildi standa saman og vinna að bættum réttindum og lífskjörum. Síðan þá hefur margt breyst en hlutverk félagsins er enn það sama: að standa með blindu og sjónskertu fólki og styðja það til sjálfstæðis.

Á þessum 87 árum hefur félagið verið mikilvæg rödd í hagsmunabaráttu blindra og sjónskertra og átt þátt í fjölmörgum framförum á sviði aðgengis, þjónustu og annarra réttindamála. Jafnframt hefur það verið vettvangur fyrir öflugt félagsstarf, stuðning og samveru.

Einkunnarorð félagsins, Stuðningur til sjálfstæðis, endurspegla vel það sem starf Blindrafélagsins snýst um. Á hverjum degi leita félagsmenn, aðstandendur og aðrir til félagsins eftir ráðgjöf, upplýsingum, stuðningi og samfélagi.

Á afmælisdeginum viljum við þakka öllum þeim sem hafa verið hluti af sögu Blindrafélagsins í gegnum árin: félagsmönnum, starfsfólki, sjálfboðaliðum, velunnurum og samstarfsaðilum.

Án þeirra væri félagið ekki það afl sem það er í dag.