Fundargerð félagsfundar 18. mars 2026

Fundargerð félagsfundar 18. mars 2026

1. Fundarsetning

Formaður félagsins, Sigþór U. Hallfreðsson, setti fundinn.

2. Kynning fundargesta

26 manns sóttu fundinn í sal og nokkrir tóku þátt á Teams. Þeir voru ekki kynntir.

3. Kjör starfsmanna fundarins.

Unnur Þöll Benediktsdóttir var kjörin fundarstjóri og Marjakaisa Matthíasson fundarritari.

4. Afgreiðsla fundargerðar síðasta félagsfundar.

Fundargerðin var samþykkt.

5. Hvað höfum við lært af færnibúðum fyrir blind og sjónskert ungmenni?

Dr. Ingi Þór Einarsson og María Sól Jónsdóttir frá Háskólanum í Reykjavík sögðu frá Færnibúðunum fyrir blind og sjónskert börn og ungmenni. Hugmyndafræðin kemur frá Bandaríkjunum og stýrði stofnandi búðanna, Lauren Lieberman, færnibúðum á Íslandi ásamt gestum frá Bandaríkjunum.
 
Tilgangur færnibúðanna er að valdefla þátttakendur. Börnum og ungmennum gefst tækifæri til að spreyta sig í ýmsum íþróttum og er vonast til að þátttakendur ílengist í íþróttum. Unnið var með einstaklingnum maður á mann grundvelli. Á sama tíma fór fram færnimat sem Háskólinn í Reykjavík sá um. Færnimatið nýtist svo þátttakendum í áframhaldandi þjálfun, t.d. með íþróttakennurum.
 
Á fyrstu búðunum var sjónskerðingin ekki aðalfötlun hjá mörgum þátttakendum og reyndist það meiri áskorun en skipuleggjendur höfðu búist við. Margir voru m.a. búnir að fara í Reykjadal áður og vildu helst gera það sem þau voru vön að gera þar og voru treg til að prófa eitthvað nýtt sem reyndi á. Rannsakendurnir voru fimm og það þurfti líka fleiri starfsmenn til að fylgjast með börnunum. Að öðru leyti gengu búðirnar vel og þátttakendur voru virkir hver á sinn hátt.
 
Færnibúðirnar 2025 voru haldnar í borginni fyrir þátttakendur sem voru á svipuðu getustigi og miðaðar að ungmennum sem sjónskerðing var aðaláskorunin. Kvöldvökurnar voru í salnum í Hamrahlíð 17 en allir gistu heima en þetta leiddi til þess að það myndaðist ekki sumarbúðastemning þegar kvöldvökurnar enduðu.
 
Tvær íslenskar stelpur tóku þátt í amerísku sumarbúðunum sumarið 2025. María greindi frá því að það mátti sjá mikinn mun á sjálfsöruggi og trú á eigin getu. Þær urðu mjög sjálfstæðar. Umhverfið var mjög uppbyggjandi og hvetjandi og þátttakendurnir vissu að það væri í lagi að gera mistök og leysa svo af því.
 

Niðurstöður úr rannsókninni:

Almennt koma íslensku ungmennin betur út í samanburði við þau bandarísku, eru grennri og með betri hreyfifærni en hins vegar kemur fram verulegt vanmat hjá þeim á eigin getu. Íþróttasamband fatlaðra gæti verið meira með í að skipuleggja starf fyrir ungmenni. Foreldrar þurfa líka meiri fræðslu en fyrst og fremst þarf að auka eigin færni barna og ungmenna.

6. Heilsutengt – líkamsstaða og öndun.

Þorkell Steindal sagði frá tilraunanámskeiði um öndun og líkamsmeðvitund á vegum Sjónstöðvarinnar og var hann umsjónarmaður námskeiðsins. Á námskeiðinu var fjallað um hvernig öndun, líkamsstaða og taugakerfi vinna saman og hvernig einfaldar æfingar geta aukið slökun, líkamsvitund og jafnvægi í daglegu lífi. Þátttakendur lærðu m.a. um 360 gráða þindaröndun og hvernig öndun hefur áhrif á taugakerfið. Námskeiðið tekur sex vikur og er tímunum skipt niður í sex vikur.

7. Önnur mál

Gísli Helgason benti á að það er alltaf sama fólk sem sér um fundarstörf og að það væri kannski kominn tími til að halda nýtt námskeið um fundarstjórn. Opið hús er með sömu umsjónarmenn og dagskrá. Það vantar neista í opið hús og er full ástæða til að efla þetta starf.
 
Sigþór U. Hallfreðsson sagði að það væri vel þegið að koma með nýjar hugmyndir í Opna húsið. Óli Þór Jónsson sagði að 67+ hópurinn hefði komið með tillögur að erindum í Opna húsið og væri að stjórna þeim við og við.
 
Vorfagnaður félagsins 17. apríl var auglýstur.

8. Fundarlok

Formaður lauk fundinum kl. 17:30.