Fundargerð félagsfundar 26. mars 2025.

Félagsfundur 26. mars 2025 kl. 16.30, Hamrahlíð 17

1. Fundarsetning

Formaður félagsins, Sigþór U. Hallfreðsson, setti fundinn kl. 16:30 og bauð alla velkomna.

2. Kynning fundargesta

Fundarmenn kynntu sig. 38 manns sóttu fundinn í sal og 3 á Teams.

3. Kjör starfsmanna fundarins

Unnur Þöll Benediktsdóttir var kjörin fundarstjóri og Marjakaisa Matthíasson fundarritari.

4. Afgreiðsla fundargerðar síðasta félagsfundar

Fundargerðin var samþykkt samhljóða.

5. Kynning á hjálpartækjum frá Sjónstöðinni, 15 – 20 mínútur.

Til stóð að fá kynningu frá Isavia um leiðarlínuverkefnið en formaðurinn tilkynnti að það félli niður. Í staðinn kynntu Vala Jóna Valgarðsdóttir og Elfa Svanhildur Hermannsdóttir tvö ný hjálpartæki sem Sjónstöðin veitir. Það fyrsta var skanni sem talar íslensku. Tækið litur út eins og gamaldags útvarp og er um 20 x 20 x10 cm á stærð. Það tekur mynd af textanum og les upphátt t.d. bækur, dagblöð og blaðsiður af stærðinni A4 og A3. Tækið les dálka og opnur af bók. Hægt er m.a. að stilla lestrarhraðann, tengja við það heyrnatól og tölvu og vista upplýsingarnar.

Þorkell Jóhann Steindal benti á að einnig væri til ókeypis smáforrit í síma sem skannar texta og er hægt að láta lesa textann á íslensku.

Hitt hjálpartækið var IO hvítur stafur, sem er með bogið handfang til að passa betur við líkamsbeitinguna. Stafurinn er þrískiptur, frekar stór saman brotinn og kemur í nokkrum stærðum. Stafurinn var sýndur fundargestum og voru skiptar skoðanir um hann.

6. Kynning á innra starfi félagsins

Ábyrgðaraðilar kynntu félagsstarf á vegum félagsins.

Dagbjört Andrésdóttir sagði frá kórnum sem stofnaður var í byrjun árs. Æfingar eru á föstudögum kl. 16 til 18 og sungin lög sem flestir þekkja.

Konráð Einarsson sagði frá Molum og Kaffi þar sem spjallað er um allt mögulegt. Hittingurinn er á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum milli kl. 10 og 12 og eru allt að 8 manns sem mæta.

Rúna Garðarsdóttir kynnti Opið hús sem er milli kl. 13 og 14:30 á sömu dögum. Dagskráin er fjölbreytileg og tvívegis á ári er farið í stutt ferðalag.

Rúna kynnti einnig starf skemmtinefndar. Næst er á dagskrá vorfagnaður 4. apríl.

Þorkell Jóhann Steindal (Keli) sagði frá leiðsöguhundadeildinni. Síðastliðið haust var farin vinnuferð til Stykkishólms þar sem hundaþjálfari sá um dagskrána. Deildin hittist að jafnaði einu sinni í mánuði.

Kristín Sjöfn Valgeirsdóttir kynnti heilsuklúbbinn sem tók til starfa árið 2019. Tvísvar í viku eru haldnir tímar sem skiptast í þrjá hluta og geta þátttakendur mætt í alla eða þann hluta sem hentar þeim. Í fyrsta hlutanum er unnið með vöðvastyrk, næst er jógatími með áherslu á öndun, liðleika og jafnvægi og í lokin er slökun. Þátttakendur eru oft kringum 10 og kostar þátttaka 2500 kr. á mánuði.

Guðrún Guðbjörnsdóttir sagði frá bókmenntaklúbbnum sem er búinn að starfa í 20 ár. Brynja Arthúrsdóttir leiðir klúbbinn og hittist hann á fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar

Lilja Sveinsdóttir sagði frá prjónakaffinu sem hittist á þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Hugmyndin er að gefa ráð og hjálpa öðrum og er nýtt prjónafólk velkomið að slást í hópinn til að læra að prjóna.

Halldór Sævar Guðbergsson sagði frá íþróttastarfinu innan félagsins. Undanfarin ár hafa verið farnar skíðaferðir til Drangsness og á sumrin gönguferðir á fjöll. Helga Einarsdóttir stofnaði Heljarmennafélagið á sínum tíma kringum 1995 og starfið heldur enn áfram. Nýjasta íþróttagreinin er showdown, stundum kallaður spaðabolti.

Unnar Þór Reynisson sagði frá spunaspilakvöldum unga fólksins þar sem lítill hópur spilar í ævintýraheimi Dreka og dýflissa. Rannsóknir sýna jákvæð áhrif þátttöku, hún eykur m.a. sjálfstraust. Teningarnir eru með punktum auk þess að hægt sé að kasta tening í gegnum heimasíðu sem Unnar hannaði.

Ólafur Þór Jónsson sagði frá Trimmiklúbbnum Eddu sem hefur verið starfandi í yfir 40 ár. Hópurinn æfir vatnsleikfimi á miðvikudögum í Grensáslauginni.

7. Umræður

Það skapaðist líflegar umræður um innra starf félagsins. Það var ítrekað að það væri gott að hafa ákveðinn stað fyrir spaðaboltaborðið og jafnvel að fá erlendan þjálfara í stutta heimsókn til að kenna tækni. Leiðsöguhundadeildin gæti haldið opinn fund til að kynna leiðsöguhund fyrir fleiri félagsmönnum. Einnig var bent á að gott væri að halda aftur ræðunámskeið, óskað var eftir dansnámskeið og spurt um áhuga fyrir sunnudagsgöngur í kringum Reykjavík í hóp. Fundurinn fór fram í mjög jákvæðum anda.

8. Önnur mál

Baldur Snær Sigurðsson minnt á opna tækniráðgjafafundi, þar sem hann og Helena frá Sjónstöðinni gefa góð ráð, kenna og aðstoða.

9. Fundarlok

Formaður þakkaði fyrir frábæran fund og lauk fundinum kl. 18.30.