Gjaldhækkun á ferðaþjónustu Blindrafélagsins.

Í byrjun janúar 2021 hækkaði staðgreiðslugjald Strætó úr 480 kr. í 490 kr. og þar með hækkar kostnaðarþátttaka notenda í ferðaþjónustunni samsvarandi. 

Ferðaþjónusta Blindrafélagsins er þjónustuúrræði sem notast við leigubifreiðar. Samningar eru gerðir við sveitarfélög, sem samkvæmt gildandi lögum um þjónustu við fatla fólk með langvarandi stuðningsþarfir, bera ábyrgð á að fötluðu fólki standi til boða "stoðþjónusta sem er nauðsynleg þátttöku þess í samfélaginu án aðgreiningar þannig að það standi til jafns við aðra og komið verði í veg fyrir félagslega einangrun þess." 

Sækja ber um ferðaþjónustu hjá því sveitarfélagi sem umsækjandi er búsettur í.

Frekari upplýsingar um Ferðaþjónustu Blindrafélagsins.