Einstakur viðburður mun eiga sér stað 12. ágúst næstkomandi þegar almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.
Það er alls, alls ekki hættulegt að fylgjast með sólmyrkvum. Þú þarft bara að hafa nokkur einföld atriði í huga. Sólin er brjálæðislega björt og gefur líka frá sér skaðlega geisla sem þú sérð ekki, útfjólubláa og innrauða. Ef þú starir á sólina í fáeinar sekúndur byrjar sólarljósið að skemma augun í þér.
Sólin er samt ekkert sterkari eða varasamari þennan dag en hvern annan sólríkan dag. Dýr þurfa ekki gleraugu.
Venjuleg sólgleraugu duga alls, alls ekki til og ætti aldrei að nota þau! Ekki heldur stöfluð. Hefðbundin sólgleraugu draga aðeins 3x eða 4x úr birtu sólar en sólmyrkvagleraugu minnka birtu sólar um 100.000x. Í gegnum örugg sólmyrkvagleraugu á himininn að vera kolsvartur og sólin daufur hvítur eða appelsínugulur bolti.
Hér er hlekkur á myndband sem útskýrir hvernig á að nota sólvarnargleraugun almennilega.
Hér er einnig hlekkur á allar helstu upplýsingarnar fyrir sólmyrkvann og upplýsingar um hann.
Blindrafélagið hvetur fólk til að fara varlega og njóta almyrkvans rétt. Þakkir fær Sævar Helgi Bragason fyrir frábærar og góðar upplýsingar um sólmyrkvann og mikilvægi þess að nota rétt sólmyrkvagleraugu. Nánari upplýsingar er að finna á vefnum Sólmyrkvi.is.