Minningastund um Gunnar Kr. Guðmundsson, 17. mars.

Guðmundur situr við orgel og spilar.
Guðmundur situr við orgel og spilar.

Næsta þriðjudag, 17. mars verður haldin minningastund um Gunnar Kr. Guðmundsson harmonikku- og gítarleikara, en Gunnar var félagsmaður í Blindrafélaginu í marga áratugi og tók virkan þátt í starfi þess og félagslífi.

Minningastundin verður í sal Blindrafélagsins og hefst kl. 13:00. Umsjónarmenn: Ágústa Gunnarsdóttir og Gísli Helgason.

Gunnar hefði orðið 90 ára þann 16. mars og því er upplagt að minnast hans nú. Gunnar varð fyrir sprengjuslysi þegar hann var 9 ára gamall. Þá tættist af honum hægri höndin og hann missti sjónina. Lýsing hans á því er til í spjalli við Jónas Jónasson og Ágústu Gunnarsdóttur.

Við ætlum að fara yfir lífshlaup hans en Gunnar var fjölhæfur maður. Fljótlega eftir slysið flutti hann suður til Reykjavíkur, aðeins barn að aldri, og hóf skólagöngu á vegum Blindravinafélags Íslands. Hann gekk fljótlega til liðs við Blindrafélagið og tók virkan þátt í starfi þess.

Gunnar naut aðdáunar og mikillar virðingar. Hann lét fötlun sína ekkert stoppa sig, var mjög græjuglaður, kom sér upp aðstöðu til þess að spila inn á segulband og hljóðblanda undirleik á hljómborð og spilaði svo á nikku eða hljómborð ofan á. Hann spilaði einnig á gítar og trompet og var að mestu sjálflærður.

Gunnar var mjög glaðsinna maður og hrókur alls fagnaðar þegar þannig stóð á. Hann var einstaklega mikill dýravinur og mátti ekkert aumt vita án þess að leggja eitthvað gott til. Jafnvel mús í kattakjafti vakti með honum samúð.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta og eiga saman stund þar sem við minnumst Gunnars og hlýðum á tónlist hans