Rósa María Hjörvar fyrsti lögblindi einstaklingurinn til að verja doktorsritgerð við Háskóla Íslands

Rósa María Hjörvar, varaformaður Blindrafélagsins, varði doktorsritgerð sína í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands föstudaginn 6. mars í Hátíðarsal Aðalbyggingar. Ritgerðin ber heitið Mælskur af bræði: Reiði, heimsveldi og nýlenduminni í íslenskum nútímabókmenntum.

 

Með doktorsvörninni náði Rósa María einstökum og sögulegum áfanga, en hún er fyrsti lögblindi einstaklingurinn til að verja doktorsritgerð við Háskóla Íslands. Áfanginn er mikilvægur bæði fyrir Rósu Maríu sjálfa og fyrir samfélag blindra og sjónskertra, og sýnir með skýrum hætti að aðgengi og jöfn tækifæri í háskólanámi skipta sköpum.

 

Blindrafélagið óskar Rósu Maríu innilega til hamingju með þetta merka afrek.