15. október, 2018
Dagur hvíta stafsins, alþjóðlegur baráttu og vitundardagur blinds og sjónskerts fólks er 15. október ár hvert.
Á þessum degi vekja blindir og sjónskertir einstaklingar og samtök þeirra athygli á hagsmunamálum sínum og hvar þörf er á úrbótum svo blint og sjónskert fólk getir verið virkir þátttakendur í samfélaginu.
Lesa frétt
29. ágúst, 2018
Samið hefur verið við sjálfseignarstofnunina Almannaróm um rekstur miðstöðvar máltækniáætlunar fyrir íslensku, að undangengnu útboði. Miðstöðin mun hafa yfirumsjón með framkvæmd og samhæfingu máltækniverkefnisins, verkáætluninni Máltækni fyrir íslensku 2018 – 2022 sem stýrihópur um máltækni fyrir íslensku lagði fram á síðasta ári og er nú fullfjármögnuð í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, stjórnarformaður Almannaróms undirrituðu samninginn í Listasafni Íslands í vikunni.
Lesa frétt