Þann 8. október nk. á Alþjóðlega Sjónverndardeginum, býður Blindrafélagið og Lions á Íslandi upp á fræðsluerindi um augasteinsaðgerðir sem fram fer í Lionsheimilinu að Hlíðasmára 14 í Kópavogi og verður jafnframt í beinu streymi hér á vefsíðu lions.
Á erindinu verður fjallað um augasteina, aðgerðir og það sem fólk getur búist við fyrir og eftir slíkar aðgerðir.
Fræðsluerindið er ætlað öllum sem hafa áhuga á efninu, hvort sem um er að ræða fólk sem stendur frammi fyrir augasteinsaðgerð, aðstandenda þeirra eða aðra áhugasama.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Við hvetjum félagsfólk, aðstandendur, vini og vandamenn til að mæta eða fylgjast með í streymi og fræðast um málefnið.