Reglur um kosningar í stjórn Blindrafélagsins á aðalfundi 2020..

Í 4 mgr. 8. gr. laga Blindrafélagsins er kveðið á um að stjórn félagsins skuli setja reglur um framkvæmd kosninga og utankjörfundaratkvæðagreiðslu í tengslum við kosningu í stjórn Blindrafélagsins á aðalfund þess. Eftirfarandi reglur voru samþykktar á stjórnarfundi 22. september: 

Reglur um framkvæmd kosninga á aðalfundi Blindrafélagsins 2020: 

Aðeins félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið geta greitt atkvæði. 

Félagsmenn geta greitt atkvæði með eftirfarandi hætti: 

a)  Í rafrænni kosningu í aðgengilegu og öruggu kosningakerfi. 

b)  Í rafrænni kosningu með aðstoð frá skrifstofu félagsins.  

c)  Utan kjörfundar á skrifstofu Blindrafélagsins á pappírskjörseðli, með eða án aðstoðar.  

Kjörgögn skulu útbúin þannig að sem flestir geti kosið á sjálfstæðan máta. 

A) Rafræn kosning.  

  • Félagsmaður sem óskar eftir að kjósa rafrænt þarf að óska eftir rafrænu aðgengi að kjörgögnum sem skrifstofa félagsins sér um að veita aðgang að.  

  • Rafræn kjörgögn og skráning á fundinn fer fram hér eða með því að senda póst á blind@blind.is eða með þvi að hringja í síma 525 0000 á skrifstofutíma. 

  • Rafræn auðkenning á félagsmanni skal fara fram hér áður en opnað er fyrir aðgang að kjörgögnum.  

  • Opið er fyrir þátttöku í rafrænni kosningu frá og með mánudeginum 12. október þar til fundarstjóri aðalfundar lýsir því yfir að búið sé að loka fyrir kosningu.  

  • Atkvæði greitt í rafrænni kosningu gildir, í þeim tilvikum þar sem félagsmaður hefur bæði greitt atkvæði rafrænt og á pappír utan kjörfundar. 

 

b) Rafræn kosning með aðstoð frá skrifstofu félagsins. 

  • Opnað verður fyrir rafræna atkvæðagreiðslu á skrifstofu félagsins mánudaginn 12. október og er hægt að kjósa á opnunartíma skrifstofunnar fram til kl. 15:00 föstudaginn 16. október.  

  • Þeir félagsmenn sem ætla að nýta sér það að kjósa rafrænt með aðstoð frá skrifstofu félagsins skulu panta tíma hjá skrifstofunni í síma 525 0000. 

  • Félagsmaður sem ætla að kjósa rafrænt með aðstoð frá skrifstofu félagsins þarf að undirgangast örugga persónu auðkenningu af hálfu skrifstofunnar. 

  • Allir félagsmenn, óháð búsetu, geta mætt á skrifstofu félagsins og greitt atkvæði.  

  • Félagsmönnum stendur til boða að fá aðstoð hjá starfsfólki félagsins við kosningu og er starfsfólkið bundið trúnaði vegna aðstoðarinnar. 

  • Heimilt er að koma með aðstoðarmann til að kjósa. Utanaðkomandi aðstoðarmaður getur hins vegar einungis verið aðstoðarmaður fyrir einn félagsmann. 

c)  Utan kjörfundar á skrifstofu Blindrafélagsins á pappírskjörseðli, með eða án aðstoðar.  

  • Opnað verður fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á skrifstofu félagsins mánudaginn 12. október og er hægt að kjósa á opnunartíma skrifstofunnar fram til kl. 15:00 föstudaginn 16. október.  

  • Þeir félagsmenn sem ætla að nýta sér það að kjósa á skrifstofu félagsins skulu panta tíma hjá skrifstofunni í síma 525 0000. 

  • Allir félagsmenn, óháð búsetu, geta mætt á skrifstofu félagsins og greitt atkvæði á þessum tíma. 

  • Tvö vitni þurfa að votta utankjörstaðaratkvæðið og er því mikilvægt að félagsmenn mæti með skilríki til að kjósa.  

  • Hægt er að mæta með vitni ef þess er óskað, en einnig geta starfsmenn skrifstofunnar vottað undirskriftina. 

  • Félagsmönnum stendur til boða að fá aðstoð hjá starfsfólki félagsins við kosningu og er starfsfólkið bundið trúnaði vegna aðstoðarinnar.  Heimilt er að koma með aðstoðarmann til að kjósa. Utanaðkomandi aðstoðarmaður getur hins vegar einungis verið aðstoðarmaður fyrir einn félagsmann. 

  •