Áramót í Vietnam - Styrktarkvöldverður

Í tilefni að áramótum í Vietnam, föstudaginn 9 febrúar, standa Leiðsöguhundadeild Blindrafélagsins og fólk af vietnömskum uppruna, búsett á Íslandi, til fjáröflunarkvöldverðar. Ágóðanum verður varið til styrktar bágstöddum í Vietnam og leiðsöguhundaverkefni Blindrafélagfsins.  Boðið verður upp á haðborð af vietnömskum grænmetisréttum.

Viðburðurinn verður frá kl 18:00 - 21:00 í sal Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17. Ekki þarf að skrá sig og eru allir velkomnir. Tekið verður við frjálsum framlögum en ekkert kostar inn á viðburðinn.