Hádegisspjall fimmtudaginn 1. mars.

Næsta hádegisspjall verður fimmtudaginn 1. mars næstkomandi og hefst að vanda klukkan 12:10. Nú er ætlunin að spjalla saman um félagslífið hjá okkur og hvernig við getum aukið þátttöku félagsmanna í því. Ýmislegt er í boði fyrir félagsmenn, en getum við bætt okkur og fengið fleiri til að taka þátt?

Til hægðarauka fyrir eldhúsið er gott að fólk láti vita um mætingu í afgreiðslu Blindrafélagsins í síma 525 0000 eða á netfangið afgreidsla@blind.is.

Kær kveðja.
Sigþór U. Hallfreðsson.
Formaður.