Jólabingó Blindrafélagsins

Laugardaginn 30. Nóvember verður haldið Jólabingó í sal Blindrafélagsins á annarri hæð í Hamrahlíð 17 og hefst kl. 15.00.

Skemmtilegir vinningar sem hafa sjaldan verið veglegri og kaffiveitingar í hléi. Spjaldið mun kosta 400 krónur en einnig verða þrjú spjöld í boði á 1.000 krónur.

Vonumst að sjá sem flesta, fjölskylda og vinir velkomin með.

Kveðja,
Hjalti Sigurðsson.
Félagsmálafulltrúi.