Kaffihlaðborð í boði Oddfellowkvenna

Oddfellowkonur í Rebekkustúkunni Bergþóru bjóða félagsmönnum Blindrafélagsins, mökum þeirra, börnum og vinum í hið árlega jólakaffi, sunnudaginn 17. nóvember. Kaffisamsætið hefst kl. 14.30 í sal Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17. Að vanda verða þær einnig með einstaklega vönduð handmáluð kerti til sölu til styrktar þeim málefnum sem stúkan veitir stuðning.

Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta í þetta glæsilega jólakaffiboð Oddfellowkvenna.